Lífið hjá grellu

Lífið hjá grEllu

04.12.2007 17:13:09 / elin

Hverfið er upplýst

Jább...ég er búin að koma helv....seríunni aftur í gang. Sem sagt nú lýsir vel á holtunum ;) Gunna þorði nú samt að setja upp sína seríu þrátt fyrir að falla í skuggann af minni...hehehehe... Ég meina það ég er ekki viss um að ég setji þessa seríu upp aftur næstu jól, fer bara að safna mér fyrir nýrri, geng í hús og safna dósum. Ég er viss um að ég fæ mikið hjá nágrönnunum þegar ég segi þeim fyrir hverju ég er að safna...þeir verða dauðfegnir að losna við þessa birtu....

En anars er allt í gúddi hér á bæ. Það er kominn ótrúlegur jólafiðringur í mig...jólagjafirnar tilbúnar nema ein...öll kortin klár...svo bráðum legg ég á borð og klæpi okkur Bríeti Maríu í jólafötin og við bíðum bara eftir jólunum...nei þetta er nú ekki alveg svona en samt.

Kveikið eins mikið af ljósum og þið getið..ykkur tekst ekki að toppa birtuna sem skín af mínu húsi :D

Gunna skrifaði
Þetta er í góðu Ella mín Mundu bara að slökkva á nóttunni svo við hin getur sofnað heheheh Annars er þetta mjög gott enginn vandi að vakna á morgnanna þegar það er svona bjart úti.

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

fréttir að heiman
Erfinginn