Lífið hjá grellu

Lífið hjá grEllu

07.01.2008 21:53:58 / elin

eftir 50 ár

Það er búið að gefa það út að Vestfirðir verði komnir í eyði eftir 50 ár...takk fyrir. Jæja, þá geta stjórnvöld farið að leggja sig fram við að uppfylla þessa stefnu. Haldiði að það verði flott hjá mér að eiga tvo sumarbústaði á Vestfjörðum? Ótrúleg yfirlýsing....

En annars er allt gott að frétta, árið sem er ný liði hefur verið mér viðburðarríkt ár og gott ár. Það sem stendur náttúrulega upp úr á árinu er fæðing dótturinnar...bara dásemd :D Það er án efa það merkilegasta sem gerðist í mínu lífi á síðasta ári. En svona annað sem ég gerði var að skreppa til Danmerkur í yndislega ferð með fjölskyldunni og eignast góðar minningar. Afslöppun í Reykjarfirði í júní og svo frænkuferðin - að ganga langleiðina upp á Hornbjarg og vera á 7 mánuði meðgöngunnar, já já ég var þung á mér en þetta var yndisleg ganga í fallegu veðri með dásamlegt útsýni og góðan félagsskap. Ég verslaði mér líka eitt st. hús sem ég er mjög ánægð með. Já þetta er svona það helsta á árinu 2007 held ég...hummm.... en þetta var samt mjög gott ár og ég er viss um að það næsta verður ekki síðra.

Jæja, esskurnar mínar ég hef verið að velta því fyrir mér að hætta þessu bloggi hérna því að það sem er að gerast svona merkilegt hjá mér er vöxtur og þroski dótturinnar og er það allt skráð á barnalandi þannig að það getur verið að ég hætti. En hvað finnst ykkur að ég eigi að gera - hætt eða ekki? Endilega kommentið á það.


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.12.2007 18:52:57 / elin

Jóla hvað?

Gleðileg jól


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 11:00:01 / elin

Hvar er...?

...SNJÓRINN? Hvernig á maður að komast í jólastuð í allri þessari rigningu?


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 11:50:30 / elin

Skemmtiatriði

Já ég samdi tvö skemmtiatriði, það fyrra er hér en það seinna krafðist aðeins meiri æfinga vegna ungs aldurs leikenda en hér er það. Góða skemmtun!!!

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 16:26:31 / elin

Tölvupóstur

Já ég sendi nokkrum vel völdum vinum tölvupóst á helginni sem er ekki frá sögu færandi NEMA HVAÐ að flestir fengu hann sennilega 60 sinnum!!!! Ég sendi þennan tölvupóst bara svona venjulega eins og maður gerir, slökkti svo á póstforritinu og skellti mér út í göngutúr. Þegar ég kom svo heim þá sá ég á msn-inu að ég væri vinsamlegast beðin um að hætta senda tölvupóst. Ég opnaði tölvupóstinn og sá að þetta hafði farin bara einu sinni...en til þess að stoppa það henti ég þessu út og þá hætti pósturinn að sendast. Ég veit ekki hvað gekk á og bið ég vini mína afsökunar á þessu en um leið vona ég að þær hafi náð boðskapnum í póstinum ;) Eftir þetta hef ég varla þorað að senda póst er svo hrædd um að þetta komi fyrir aftur, þannig að ef þið lendið í þessu að fá sama póstinn frá mér svona 60 sinnum eða svo þá biðst ég afsökunar og sendi aldrei aftur póst :S

En svo er það Bolungarvíkin mín kæra. Fyrir það fyrsta erum við stórborg og örugglega 9000 en ekki 900. Það er nefnilega búið að opna útvarpsstöð hérna í bænum jammm... Lífæðin fm 92,7 endilega hlustið á hana. Það er líka hægt að ná henni á Ísafirði og svo von bráðar á netinu!!! Jamm alvöru útvarpsstöð!!!! ;) Þetta er ekki í fyrsta skipti sem útvarpsstöð er starfrækt hér í bæ...neibbb....Einu sinni var til útvarp Traðarstígur, og meira segja var hægt að hringja inn fá óskalög...sem voru spiluð á plötum!!!!

Já Bolvikíngar hafa alltaf hugsað hátt.....og mikið.....og framkvæmt!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 17:13:09 / elin

Hverfið er upplýst

Jább...ég er búin að koma helv....seríunni aftur í gang. Sem sagt nú lýsir vel á holtunum ;) Gunna þorði nú samt að setja upp sína seríu þrátt fyrir að falla í skuggann af minni...hehehehe... Ég meina það ég er ekki viss um að ég setji þessa seríu upp aftur næstu jól, fer bara að safna mér fyrir nýrri, geng í hús og safna dósum. Ég er viss um að ég fæ mikið hjá nágrönnunum þegar ég segi þeim fyrir hverju ég er að safna...þeir verða dauðfegnir að losna við þessa birtu....

En anars er allt í gúddi hér á bæ. Það er kominn ótrúlegur jólafiðringur í mig...jólagjafirnar tilbúnar nema ein...öll kortin klár...svo bráðum legg ég á borð og klæpi okkur Bríeti Maríu í jólafötin og við bíðum bara eftir jólunum...nei þetta er nú ekki alveg svona en samt.

Kveikið eins mikið af ljósum og þið getið..ykkur tekst ekki að toppa birtuna sem skín af mínu húsi :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 20:54:09 / elin

Það er búið að slökkva á friðarsúlunnu

Hér á holtunum hefur verið kveikt á friðarsúlunni í rúman sólahring en í dag þurfti ég að taka þá ákvörðun að slökkva á ljósinu þar til veðrinu slotar. Með næsta logni verður kveikt á ný.

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 17:44:50 / elin

Að lýsa upp hverfið sitt

Smári setti upp allar útiseríurnar áður en hann fór og ég þori varla að kveikja á þeim. Ég get nefnilega svarið það að þegar ég kveiki á seríunni utan á húsinu að þá lýsi ég upp hverfið. Ég hef allavega grun um að nágrannarnir þurfi ekki að kveikja ljós hjá sér í þeim herbergjum sem snúa að húsinu okkar. Aðra eins birtu hef ég ekki séð á útiseríu. Við settum líka upp nokkrar seríur og stjörnur í stofugluggana. Það sést ekki þegar ég er búin að kveikja á þessu öllu að það séu seríur hérna inni svo mikil er birtan af útidótinu!!! Þannig að ég tók bara allt draslið úr sambandi og tel í mig kjark til þess að kveikja.

Svo var ég nú svo svakalega snjöll að ég spurði mömmu hvort að við ættum ekki að baka smákökurnar saman. Auðvitað var mamma til í það og við skelltum okkur í bakstur í dag. Mamma hrærði og hnoðaði á meðan ég gerði kúlur og klessti þær svo niður. Svo fékk ég þetta snjalla ráð að nota bara buffhamarinn á þetta, þannig að allar kökurnar eru með munstri eins og í flottri verksmiðju!!! Ég veit ég er snjöll.... ;)

Anars er það að frétta að Smári er farinn á sjóinn og kemur ekki heim fyrr en á þorláksmessu....margir telja niður þessa dagana, þeir eru að telja niður dagana til jóla en ég tel dagana niður í heimkomu Smára.

Verið góð hvert við annað....bleble


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 21:23:49 / elin

Hafnarbúðin er það tískuvöruverslun?

Já svei mér þá ef það er ekki bara aðal tískuverslunin á svæðinu!!! Ég er ekki að segja þetta með neinum hroka, fór þarna inn í gær og það eru bara rosalega flott föt þar að mínu mati og í ÖLLUM STÆRÐUM. Þeir sem horfðu á Óbeislaða fegurð á seinustu helgi sáu vel þar hvernig föt eru til í búðinni. Talandi um keppnina, ég skemmti mér konunglega við að horfa á þetta, enginn að kippa sér upp við það þó svo að súpan hafi klárast, miðar hangandi útundan fötunum í tískusýningunni og svona mætti lengi telja. Ekta vestfirskt framtak!!!

Annars er allt gott að frétta, Smári búin að fá nokkrar rjúpur í jólamatinn og núna er hann að semja um það að hafa þær í aðalrétt á aðfangadag. Hummm..... ég er ekki alveg til í það og geri ekki ráð fyrir að gefa það eftir.

jæja, get ekki skrifað meira í bili það er kallað á mat.....þá er eins gott að drífa sig að gefa!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.11.2007 15:09:44 / elin

Ekkert að frétta?

Það er nú nokkuð langt síðan að ég skrifaði síðast, hef bara ekki nennt að setja neitt hérna inn. En það hefur svo sem ekki heldur mikið gerst. Smári er kominn heim og er ég alveg hrikalega fegin ekki það að ég hafi ekki ráðið við aðstæður heldur bara svo gott að hafa hann heima.

Við ætlum að skella okkur í borgina á miðvikudaginn og verðum í viku!!! Smári er að fara á námskeið og ég ætla aðeins að versla, maður er svo ferlega ríkur á því að vera í fæðingarorlofi ;) Vonandi hitti ég sem flesta í þessari ferð minni, bara endilega að hafa samband og við finnum tíma til þess að hittast!!!

Já hún Auður mín á afmæli í dag til hamingju með daginn elskan og njóttu hans vel!!!! :D

bleble.....


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.10.2007 13:37:42 / elin

Helgi...aftur?

Já nú er enn á ný komin helgi...ótrúlegt hvað dagarnir líða hratt þrátt fyrir að vera "bara heimavinnandi" en reyndar eru allir dagar eins eða þannig sko. Ég geri ekki mikin mun á því hvort að það er mánudagur, fimmtudagur eða helgi. En það er nú ágætt að dagarnir líði svona hratt því þá er enn styttra í það að Smári komi heim. Agnes ætlar að koma í heimsókn í næstu viku....hlakka til að sjá þig Agnes mín!!!

Það er alveg ótrúlegt hvað rignir þessa dagana...en samt er ofsalega fallegt og gott veður get nú ekki kvartað yfir því. Málið er bara að dressa sig í regngallann áður en lagt er af stað í göngutúr. Bríet María sefur ósköp vel í þessari rigningu...skil hana SVO vel.

Við fórum í heimsókn í skólann á mánudaginn... Bríet María var eins og ljós lét nú ekki heyra neitt í sér leifði þeim sem vildu halda á sér og bara var hin rólegasta að skoða ný og ný andlit. En það verður ekki alveg sagt það sama um hann Guðjón Ólaf...hann er ekki samkvæmisljón....enn þá. Svo á mánudagskvöldið kom Gunna Dóra í heimsókn þá sýndi Bríet María henni sko alveg hvað hún gæti....vona að þú sért búin að jafna þig Gunna Dóra ;)

En annars er þetta líf bara ósköp ljúft...er að fara á Ísafjörð og hún Hanna Björg ætlar að passa prinsessuna sem sefur úti í góða veðrinu.

Þangað til næst bleble..


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 16:22:05 / elin

Kóngurinn er mættur

Já í alvörunni þá er Bubbi kóngur í bænum!!! Ég var búin að ákveða að fara í prufur í kvöld en þar sem ég fæ ekki pössun þá verð ég að sleppa því :( Þannig að í staðin hef ég gengið tvisvar sinnum fram hjá Einarshúsi í dag í von um að kóngurinn taki eftir mér....en nei hann sá mig ekki....á samt von á honum í kaffi.

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 15:07:06 / elin

Hver man eftir....

Hver man eftir Lísukexi? Þetta var svona súkkulaði kex, þunnt með kókosmjöli ofan á. Pakkinn var blár með mynd af stelpu á.

En svona annars þá er bara allt gott að frétta. Smári er farinn á sjóinn :cry: Hefði nú alveg verið til í að hafa hann lengur heima. Ótrúlegt hvað dagarnir hafa liðið hratt, vona bara að þeir verði það áfram þangað til hann kemur heim og svo má það stoppa ;) En mér heyrist nú samt á öllu að það verði nóg að gera í nóvember. Nánast hver helgi plönuð, þannig að ég á ekki von á því að nóvember líði hægt í gegn. En kemur í ljós.

Kveðja úr snjónum og sólinni....


» 1 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 12:52:08 / elin

Allt og ekkert

Hefur þú pælt í því hvernig þú sefur?  ég meina í hvaða stellingu. Ég hef svolítið pælt í þessu, sennilega af því að í langan tíma gat ég ekki sofið á maganum. Ég var farin að þrá það að geta lagst á magann, en alveg fram á síðasta dag gat ég sofið á bakinu þótt ótrúlegt sé. Þannig að af fjórum hliðum gat ég notað þrjár. Núna þessa dagana held ég að í flestum tilfellum liggi ég á maganum. En hvað með þig?

Það er alveg ótrúlegt hvað dagarnir eru fljótir að líða, það er alltaf komið kvöld aður en maður veit af. Þrátt fyrir að vera "bara" heima og gera "ekki neitt" þá flýgur dagurinn alveg frá manni, skil þetta ekki. Ég hélt að það yrði svo erfitt að láta daginn líða þegar maður er svona heima en nei nei svo er ekki. Samt sefur Bríet María mest allan daginn og ég er bara eitthvað að hanga í tölvunni, leggja mig, setja í þvottavél og næstum því bíð eftir því að hún vakni svo ég hafi eitthvað að gera, þetta er ótrúlegt!!

Reykjarfjarðarættin er alltaf að stækka komnir vel yfir 300 afkomendur frá ömmu og afa. Í gær bættust við strákur og stelpa, þannig að það hafa bæst við 3 í þessum mánuði. Þrátt fyrir allan þennan fjölda er bara einn afkomandi sem á afmæli sama dag og amma, ég veit ekki með afa, verð að athuga það.

En jæja, nóg af bulli í bili...bleble


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 11:14:53 / elin

Hver fann upp.....

.....straujárnið? Hann gerði mér ekki greiða með því 8| :S

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 20
fréttir að heiman
Erfinginn